Leyndarmál daganna

03.09.2008 10:01:52 / sigga

Lífið...

Hérer lítið skrifað... ástæðan hreinlega sú að upplifunin er svo sterk að enginorð ná yfir hana... hér er hver dagur einstakur.... lífið er eins ogkvikmynd... sem mig langar ekki að endi....  />

  />

Ströndiner yndisleg... hitinn 30 - 40 gráður á daginn.... aðeins farið að kólna ákvöldin, þurfti peysu í gærkvöldi.... fólkið er líka yndislegt... kynnist nýjumkonum á hverjum degi, konur með frábærar hugmyndir, skapandi, heilandi ogfallegar...  />

  />

Hérer sköpunarorkan svo sterk að konur þrá að standa á sviðinu og tjásig....  />

  />

Þaðbesta sem ég geri er að dansa "flight of the navigator" áströndinni við litlu kirkjuna, í kvöld dönsum við á nýju tungli, á morgundönsum við á sviðinu fyrir konurnar.... ;) />

  />

Ferí stuttar ferðir á Mopedinu og þá er yndislegt að finna vindinn leika viðlíkamann í hitanum, fór um daginn og heimsótti klaustur upp á fjalli þar semernirnir búa.... bjargaði lífi kettlings í ferðinni..... />

  />

Heldég sé í vímu....  náttúrulega hátt uppi af ótrúlegu ævintýri  />

  />

hvernigget ég farið heim... />

  />


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 17:49:56 / sigga

í grískri paradís...

40 stiga hiti, sól, smá vindur, yndislegt sólarlag, ölduhljóð í eyrum í bland við þýða gríska tónlist, fallegar konur og bjór.... það gerist ekki betra....

er semsagt komin til Skala Eressos eftir hrikalega langt ferðalag og svefnleysi sem orsakaði ofsjónir, svima og algjöra vitleysu.... en gæti ekki verið afslappaðri núna.

Þetta er eins og að koma heim... ég var hér eina viku í fyrra og fyrsta kvöldið mitt hitti ég nokkrar yndislegar konur sem ég hitti í fyrra, sem ég átti ekki von á að hitta, og það fyndna er að ég hafði ekki sagt neinum hér að ég væri að koma og samt vissu það allir.... þetta er verra en hið minnsta íslenska smáþorp :o) en það gerir það bara yndislegt.... 

Núna ætla ég að fara í útibíó og sjá Mamma Mía í fyrramálið ætla ég að vakna snemma og fara í jógatíma á ströndinni ;o)

sendi ykkur þýðar kveðjur frá grískri paradís..... og meira síðar

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.08.2008 15:06:29 / sigga

Reykjavíkurrigning...

Þá er sumardvöl í sveit lokið ;) ég komin til Reykjavíkur og aldeilis ekki í neina strandarstemningu... sit hér á Kaffi Hljómalind og bíð eftir að það hætti að rigna svo ég geti hlaupið út í bíl án þess að verða rennandi blaut...

Síðustu dagarnir í sveitinni voru yndislegir... pottaferðir, varðeldur í Staðarfjalli og svo fór ég í bæjarferð til Hafnar m.a. til þess að sjá sýninguna Galdrakarlinn í Oz, Lottukrakkarnir stóðu sig að sjálfsögðu frábærlega og ég mæli sko með að þið drífið ykkur að sjá ef þið hafið ekki séð þau í sumar.... það fer hver að verða síðastur...

Það er ekki laust við að maður sé í örlitlu menningarsjokki hér í borginni, svo mikið af fólki alls staðar... eftir rólegheitin á Hala... 

Ég vona að ég hitti sem flesta á Gay Pride um helgina... allir að drífa sig í bæinn :)

Næst mun ég svo blogga á ströndinni í Grikklandi ;) sjáumst

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 17:22:34 / sigga

Af puttaferðalögum

Í dag hitti ég einn skemmtilegan hjólreiðakappa frá Þýskalandi sem þekkti trúlega nöfn fleiri íslenskra rithöfunda en ég....  og búinn að lesa flest það sem þýtt hefur verið.... það hljómaði allavega þannig.... frábær strákur :)

Nú eins og ég hef kannski áður sagt þá er að vinna hér stúlka frá Tékklandi, hún fór í ferðalag í Skaftafell á puttanum sem væri ekki svo merkilegt ef hún hefði ekki verið einstaklega heppin í gærkvöldi á heimleiðinni... fyrsti bíllinn sem fór framhjá stoppaði og þar voru á ferð feðgar frá Tékklandi sem búa ekki svo langt frá henni... þetta er lítill heimur... og þeir voru á leið einmitt hingað til þess að skoða safnið hans Þórbergs.... það er nefnilega þannig að hér á Hala dvaldi tékknesk stúlka í kringum 1965, hún lærði íslensku og varð yfirsig hrifin af staðnum, hún tók sig svo til og þýddi "Steinarnir tala" á tékknesku. Þessi strákur var semsagt nemandi hennar frá Tékklandi og búin að lesa bókina... semsagt afskaplega lítill heimur....

Um daginn var ég í fríi og fór í örlítið puttaferðalag út að Jökulsárlóni og fór í bátsferð. Afskaplega yndisleg ferð, sól og blíða og allt í lagi að þurfa ganga um helming leiðarinnar.... Starfsfólk Þórbergsseturs ferðast aðallega um á puttanum... styttri og lengri vegalengdir og raunin er sú að íslendingar stoppa helst ekki en útlendingarnir hins vegar stoppa oft. Það var t.d. þýskt par sem tók mig uppí.... á heimleiðinni þurfti ég að ganga lengi.... en var loksins tekin uppí, reyndar af íslendingum, en þeir höfðu verið með mér í bátsferðinni fyrr um daginn og vissu að ég var ekki að fara langt :)

kveðjur úr sveitinni....  ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.07.2008 21:30:04 / sigga

Hali húsdýragarður

Mikið er nú skemmtilegt þegar sólin skín... ég er reyndar að vinna alla daga til fimm eða sex en ég næ smá sól í heita pottinum eftir vinnu ;) Ég get setið þar í sól til hálfsjö en þá er sólin horfin bak við vélageymsluna.

Hér er alveg brjálað að gera... stundum eru vegirnir hérna í kringum bæina eins og Laugavegurinn þvílík er traffíkinn af túristum, í gær leið mér eins og ég væri komin í Húsdýragarðinn, túnið hér fyrir framan var þakið túristum og börnin rifust um að gefa rolluaumingjunum í girðingunni njólablöð.... :)

Aðrar fréttir eru þær að nú er Grikklandsferðin mín að verða ákveðin, búin að greiða fyrir gistinguna og flugið út... ég er reyndar ekki alveg búin að ákveða hvernig ég fer heim... mig langar svolítið að fara til Istanbúl og fljúga þaðan heim...en ég ætla bara að ákveða það þegar ég kem út :)

Vona að allir hafi það sem best í sumrinu.... þið megið endilega skrifa mér komment.... ég er eitthvað svo útúr umheiminum hérna í sveitinni.... ég er næstum búin að gleyma hvernig á að nota gsm síma....

knús

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 21:43:53 / sigga

meira um mat

Talandi um mat... ef þið eigið leið hjá Þórbergssetri um kvöldmatarleitið þá verðið þið að stoppa, hér er sko fínasta vetingarhúsið við þjóðveg Íslands.... dúkað upp og þjónað til borðs... og matseðillinn alveg frábær... að sjálfsögðu besta jöklableikja íslands... framleidd og unninn á staðnum, reykt, marineruð og fersk.. og lambakjötið ekki síðra... en það besta og hættulegasta er eftirrétturinn... "rabbabaragrautur íslands" með ís og rjóma :lol: algert lostæti... og er alveg að eyðileggja heilsusamlegt líferni mitt undanfarna mánuði....:$

jamm... þetta vissuð þið ekki ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 18:23:33 / sigga

Sól og kaffi á kornfleksið...

Sól sól skín á mig... ský ský burt með þig... jamm loksins skein sólin á Hala... Í dag er glampandi sólskin en frekar vindasamt... í gær sást sólin líka smá...svo ég skrái nú veðrið í anda Þórbergs... ;)

Foreldrarnir og Ameríkufarinn komu um helgina, það var nú ósköp indælt að sjá Völuna eftir eitt ár, hún hefur sem betur fer ekkert breyst fyrir utan auðvitað að stúlkan talar mjög fyndna ensku með miklum kalifornískum hreim hehe... :)

Ég fékk frí um helgina til að vera með fjölskyldunni og í fyrsta skipti í rúmar 3 vikur keyrði ég upp afleggjarann og fór í örlitla sveitaferð (í aðra sveit). Við skruppum upp í Lón í sumarbústaðaheimsókn... og þar sá ég Batmanfjallið... nú svo stoppuðum við í Árbæ á Mýrum en þar er framleiddur gómsætur jöklaís. Mjög gaman að koma þangað og ísinn þeirra er virkilega góður.

Folaldið dafnar við lónið, heimsótti það í gær, afskaplega fallegt, hvítt að lit. Svo lá ég bara í heita pottinum í sólarglætunni í gær og hafði það indælt :)

Af gestum staðarins er allt fínt að frétta... í nótt gistu hér í tjaldi par með ungt barn sem eru að ferðast um Ísland á hjólum, með barnið í vagni aftan í einu hjólinu, afskaplega hugrökk og frísk.

Nú svo sér maður af og til einkennilegar matarvenjur, það var annsi skemmtilegt þegar einn japani úr hádegishóp hér um daginn var komin með vínartertusneið við hliðina á silungnum á diskinn og hvítlaukssósu ofan á allt saman og borðaði allt með bestu list.
Annar gestur fékk sér kaffi út á kornfleksið, örlítið af mjólk og sultu ofan á. namminamm.....

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.07.2008 17:21:01 / sigga

fyrirboði um eldgos?

og enn sést ekki til fjalla fyrir þoku... verð að segja að þetta er orðið örlítið þreytandi... amma segir að langamma mín hefði sagt að þetta veðurfar væri fyrirboði um eldgos.  Nú er bara að bíða og sjá hvort fer að gjósa einhvers staðar á næstunni :)

Vala litla systir mín er loksins komin heim úr einsárs dvöl í Ameríkunni þar sem hún var skiptinemi. En ég hef ekki enn geta litið hana augum þar sem hún var svo heppin að fá vinnu strax og hefur ekki fengið frí til að heimsækja mig... ég vona að ég geti hitt hana núna um helgina, ef hún fær ekki frí þá flýg ég til borgarinnar á morgun.

Annars er lífið rólegt í sveitinni, engir skrýtnir gestir undanfarið.... en í fyrradag fæddist folald á bænum :)

En þið verðið að lofa mér því að þið stoppið ef þið eigið leið hjá Hala!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 21:04:55 / sigga

Mistíkinn í þokunni

Hér læðist þokan um allt og hefur gert undanfarna daga... stundum er það svo slæmt að ekki sést upp á veg fyrir þoku. Aumingja ferðamennirnir sem hingað koma uppfullir af hugmyndum um fegurð skaftafellssýslu sjá ekki neitt.... jakarnir á lóninu hverfa í þokunni og steinarnir talandi í fjallinu sjást ekki fyrr en maður dettur um þá ;)

Ég verð að viðurkenna að það er frekar fúlt að heyra íslensku ferðamennina lýsa sólinni og hitanum sem þeir voru að koma úr.... "pottur í Mörkinni í gær" "sól og hiti í Grímsnesinu"... og svo framvegis.... En mitt verk er að reyna að sannfæra útlendingana um að þeir hafi ekki verið sviknir og fullvissa þá um hversu heppnir þeir eru að fá að upplifa þessu mistísku þoku... þar sem allt getur birst og gerst.... huldufólkið er meira á ferð, tröllinn fara á stjá og steinarnir tala saman sín á milli....  og þetta geri ég að sjálfsögðu með bros á vör :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 21:33:49 / sigga

frumstæður pottur

Hér er heldur frumstæður heitur pottur, stendur fyrir utan vélageymsluna, gamalt hringlaga fiskeldisker sem tekur örugglega allt upp í 20 manns.... slöngur liggja ofan í pottinn og forláta krókódíll segir til um hitastigið... en þar hittist semsagt fólkið hér á Hala stundum á kvöldin og af og til er ferðamönnum sem heyrt hafa af þessum potti boðið að stinga sér með... Í gærkvöldi sátum við þar 10 af fjórum þjóðernum... þar var m.a. drengur sem sagðist vera frá Ítalíu, síðhærður með geitaskegg og útstæð eyru... við efuðumst stórlega um þjóðernið og höldum að hann hafi bara brugðið sér út úr næsta hól.

Um daginn var hér á ferð vesturíslendingur að halda upp á fimmtugsafmælið sitt, hann var annsi vígalegur mótórhjólatöffari með íslenska fánan og skjaldamerkið tattúverað á handlegginn. Hann spilaði á gítar og söng og eitt kvöldið hélt hann kántrí tónleika fyrir pottgesti 8) Hann var reyndar í örlitlum vandræðum hér á landi þar sem erfiðlega gekk að útvega maríúana, maðurinn hafði nefnilega ekki sleppt úr degi frá því hann var 16 ára gamall eða í 34 ár... Hann gat ómögulega skilið hvers vegna við værum ekki að rækta maríúana hér í sveitinni :)

Annars gengur lífið sinn vanagang og einungis einn gleypti tönn í harðri tertu í gær ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 17:12:36 / sigga

Lífið í sveitinni

Jæja þá hefur maður loksins eitthvað að segja... svo nú verður bloggað næstu vikurnar... allavega af og til...

Ég réði mig í vinnu á Þórbergssetri á Hala í Suðursveit í sumar. Hef verið hér í rúma viku núna  en verð í 6 vikur í allt. Hér er yndislegt að vera, með fjöllunum, hafinu, jöklunum, talandi steinum og gargandi kríum. Ég gjörsamlega tapa tíma og rúmi og allt í veruleikanum í Reykjavík gleymist og virðist langt, langt í burtu...

Starfið mitt felst í því að vinna frá 9 - 17 flesta daga og taka á móti fólki, afgreiða og ganga með fólki í gegnum sýninguna og segja sögur... gæti ekki verið betra.  Þetta er mjög skemmtilegt og ég hitti mikið af skemmtilegu fólki bæði íslendingum og útlendingum. Margir íslendingar sem fara hér í gegn eiga einhverjar minningar um Þórberg og ein var mjög skemmtileg... það kom hér kona um daginn sem lýsti því yfir að fyrsta typpið sem hún sá hefði verið typpið á Þórbergi. En Þórbergur gekk niður í fjöru á hverjum degi á meðan hann hafði heilsu til, klæddi sig úr öllu og fékk sér sundprett í sjónum og gerði Mullersæfingar. Þessi kona var lítil stúlka í vesturbænum í Reykjavík og mundi mjög vel eftir typpinu á karlinum :lol:

Nú og svo er ég búin að kaupa mér flugmiða til Grikklands og ætla að dvelja þar í mánuð að lokinni vinnu hér.... þannig að það eru skemmtilegir tímar framundan...

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 15:46:53 / sigga

íslendinguriNN í útlöndum

Stundum skammast ég mín alveg hræðilega fyrir að vera íslendingur.... 

Viss tegund af íslendingum er alveg hræðileg í útlöndum... það byrjar auðvitað í flugvélinni þar sem er nauðsynlegt að drekka sig fullan þó klukkan sé ekki orðin 8 að morgni... nú svo klappa þeir og öskra þegar vélin lendir.... ganga svo syngjandi út úr vélinni og eiga erfitt með að finna töskurnar á bandinu... og hafa ekkert lágt um það.... nú svo kemur fyrir að þeir reyni við saklausar stúlkur að bíða eftir tösku... jamm lenti í því í gær... hann stóð reyndar varla í fæturna.... nú svo þegar út er komið þá er farið beint á barinn..... og svo fara þeir að versla... það væri svo sem allt í lagi ef þeir þyrftu ekki að öskra upp yfir sig í hvert sinn er þeir sæu eitthvað spennandi í glugga....  og í dag var Strikið fullt af öskrandi íslendingum í bjórvímu....



» 1 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 07:26:09 / sigga

Á flugvellinum....

jamm nú sit ég á flugvellinum í Keflavík - er á leið í langa helgarferð til Köben... jeiiii... ég hef ekki yfirgefið landið í 9 mánuði... langt síðan það leið svona langt á milli ferðalaga hjá mér... enda var ferðaþráin orðin töluverð... og nú tístir í mér af tilhlökkun yfir að anda að mér kaupmannahafnarloftinu :)

hins vegar gerist margt á 9 mánuðum og ég sit hér á flugvelli sem mér finnst ég aldrei hafa komið á..... og engin smá munur að geta tékkað sig inn sjálfur... ég hefði getað sofiði í klukkutíma í viðbót 8|

Mér finnst flugvellir skemmtilegir.... gaman að horfa á fólkið og velta því fyrir sér hvaðan það kemur og hvert það er að fara... svo hittir maður alltaf fólk á flugvellinum... og allir sem maður hittir eru glaðir... glaðir yfir því að vera að fjlúga frá eyjunni.... það er nefnilega töluvert álag að búa á eyju.... en núna verð ég að þjóta í flugið...... það bíður víst ekki eftir mér..... jibbý..... 

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 12:39:27 / sigga

skemmtilegt leikhús

Ég fór á frábæra leiksýningu á laugardagskvöldið. Mammamamma í Hafnarfjarðaleikhúsinu. Það var mjög upplífgandi og skemmtilegt að þurfa að fara úr skónum og í bleika ullarsokka áður en sýningin hófst :) Nú og svo fengu allir nýbakaðar pönnukökur að sýningu lokinni - frábært !!! Leikkonurnar 4 stóðu sig mjög vel og komu þeirri upplifun að vera móðir fallega á framfæri :)

Í síðustu viku sá ég líka Engisprettur í Þjóðleikhúsinu, ég hefði viljað vera aðeins hressari, átti örlítið erfitt með að halda mér vakandi...  en það hafði meira að gera með svefnleysi mitt eftir öflugt stelpuboð deginum áður en ágæti sýningarinnar... Semsagt mér fannst Engisprettur mjög gott leikrit og persónusköpunin alveg frábær. Sviðið var líka skemmtilegt og ljósin.

Svo hlakka ég til að sjá Dauðasyndirnar í kvöld...

Annars bíð ég bara eftir því að flytja..... reyni að brosa framan í heiminn og hef ekki farið úr hjartakjólnum ;) !!

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 16:24:26 / sigga

Um langanir

Þessa dagana finn ég fyrir sterkri og undalegri löngun í gamla hluti og gamlar upplifanir... og það er einnig skrýtið og gott að finna aftur fyrir löngun til að skrifa, koma niður á blað þessum undarlegu löngunum ;) einu sinni skrifaði ég heil ósköp... svo skrifaði ég bók og þá langaði mig ekki að skrifa meira... skrifaði yfir mig á stuttum tíma... núna 5 árum síðar langar mig aftur að skrifa... þá er bara að fara að kaupa sér penna.... 

Í gær keypti ég mér bleika goltreyju með svörtu hlébarða munstri og fjólubláan kjól með grænum og bleikum hjörtum... stundum er nauðsynlegt að kaupa eitthvað gleðilegt til að kæta hjartað. 

Bráðum flyt ég og þá ætla ég að ná andanum aftur, skríða út úr kassanum, opna hjartað og vera oft í hjartakjólnum...



» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Heimsóknir
Í dag:  35  Alls: 130334
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti