Leyndarmál daganna

31.12.2005 16:08:21 / sigga

Nú árið er liðið.....

Jæja loksins...... hef víst ekki staðið mig nógu vel undanfarið.... reyndar ekki staðið mig vel í neinu undanfarið nema borða og sofa...... hmmmm og núna er árið að verða búið og lokasýningin á Jólaævintýrinu var í gær semsagt öllu lýkur einhverntíman ;) Sýningarnar gengu súpervel.... svakalegt fjör en nú þarf ég víst að fara að einbeita mér að annarri sýningu.... ætla að setja upp West Side Story með hagaskóla og frumsýna eftir rúma 2 mánuði... ég þarf víst að fara að leggjast yfir það. hmmmm ætla víst líka að skila mastersritgerðinni minni eftir rúma 2 mánuði, verð víst að treysta enn og aftur á aukaorkuna sem ég bý yfir og það kjaftæði að ég vinni svo vel undir álagi.... svo fæ ég örugglega taugaáfall og verð lögð inn í kjölfarið... en það er seinni tíma vandamál....

Annars hefur þetta verið mjög viðburðarríkt ár og ég hef bara gert heimikið skemmtilegt........ hér er eitthvað af því......

Ég:
- Setti upp Jesús Krist Súperstar í Hagaskóla með frábærum krökkum og enn frábærari tónlistarstjóra, Hrólfi (sem ætlar líka að vera með mér núna).
- Fór á kvikmyndahátíð í London.
- kenndi leiklist á skemmtilegum söngnámskeiðum með Ingveldi Ýr.
- Setti upp söngleikjaprógram með sönghópnum Blikandi stjörnum í Borgarleikhúsinum.
- Fór með Blikandi stjörnum á listahátíð í Lettlandi.
- Fór á frábært tónlistarnámskeið með fötluðum og ófötluðum í Svíþjóð.
- Fór með Hugleik á leiklistarhátíð í Mónakó þar sem við sýndum "Undir Hamrinum".
- Fór á kvikmyndahátið í Oslo og var a EuroPride í Oslo.
- Fór í nokkur yndisleg ferðalög innanlands.
- Bætti við mig nýjum skóla og kenni núna líka leiklist í Hvassó.
- skrifaði um samkynhneigð fyrir vefsíðuna "Ef bara" sem RKÍ rekur.
- Eignaðist æðislega kærustu.
- Byrjaði á Mastersritgerðinni minni.
- Lék einleik á Hugleiksdagskrá í´Þjóðleikhúskjallaranum.
- Sat í stjórn undirbúningsnefndar fyrir Hinsegin Bíódaga.
- Lék í "Jólaævintýri Hugleiks".
- kynntist fullt af áhugaverðu fólki.
........ og martgt fleira skemmtiegt.

Og að lokum segi ég:

GLEÐILEGT NÝTT ÁR....!!!! :haha::haha:

Sjáumst á nýju ári!

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 15:51:52 / sigga

jóla jóla jóla....... og afmæli... :o)

Það er sko algerlega á hreinu að sjálfskrifandi ritgerðarforritið í tölvunni minni virkar ekki.... ég þarf greinilega nýja tölvu.... :( hmmmm..... semsagt gengur frekar hægt hjá mér.... en ég held ég sé þó allavegana komin með nokkuð skothelda hugmynd.... annars á Íris afmæli í dag :) ... og ég lét mig hafa það að vakna hriiiikalega snemma og baka pönnukökur og hita kaffi.... nú og svo þurftum við að spila nokkrar umferðir af afmælisgjöfinni.... semsagt góður dagur til að dissa ritgerðir og slíkt.... nú svo er jólagjafaföndrið á góðu róli... allir fingur á sínum stað og íbúðin enn í ágætis standi.... vona bara að allir sem ég gef gjafir í ár séu uppfullir af hinum sanna jólaanda og skilji að allur tími, sviti, tár og ást sem lagt er í verkið er mun mikilvægara en peningar og útlit..... ;) Muna svo að fara vel með sig fyrir jólin.... ekki festast í rúllustiganum í Kringlunni eða hlaupa niður jólasveina á Laugarveginum.... og 7 sortir er sko alveg meira en nóg....

» 98 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 19:13:53 / sigga

Fingramálari með meiru....

You Should Get a MFA (Masters of Fine Arts)
 
You're a blooming artistic talent, even if you aren't quite convinced.  You'd make an incredible artist, photographer, or film maker.

Ég semsagt datt í svona míní-persónuleikapróf hmmm... það er svona þegar maður á að vera að skrifa ritgerð.... mér finnst þetta eiginlega svolítið fyndið með listina, sko þessi mynd af apanum lýsir nefnilega mínum hæfileikum nokkuð vel, það vantar ekki hugmyndirnar en stundum vantar upp á þolinmæði og vandfærni.

Nú svo gat ég ekki annað en tekið líka svona myndapróf.... ég meina hér á ein mynd að segja allt um minn persónuleika.... merkilegt ;) 

Your Personality Profile
You are funky, outdoorsy, and down to earth.
While you may not be a total hippie...
You're definitely one of the most free spirited people around.

You are very impulsive - every day is a new adventure.
However, you do put some thought behind all your actions.
Still, you do tend to shock and offend people from time to time!


Annars minni ég á sýningar á JÓLAÆVINTÝRI HUGLEIKS föstudag kl. 20.00, laugardag kl. 16.00 og sunnudag kl. 20.00 :haha:


» 72 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 13:36:58 / sigga

Ef ég væri karlmaður

Keli vinur minn "löðrungaði" mig, sem þýðir víst að ég á að skrifa 10 hluti sem ég myndi gera ef ég gæti skipt um kyn í eina viku og þar sem ég sit og horfi á tölvuna mína algerlega hugmyndalaus í ritgerðaskrifunum datt mér í hug að verða við löðrungnum:

Sem karlmaður myndi ég:

1. Minnka afköst mín um helming þar sem ég gæti ekki gert 2 hluti í einu... ;).

2. Óska eftir launahækkun.

3. Gerast Frímúrari og njósna um starfsemina....

4. Fara í sund og komast að því hvað karlmenn tala um í sturtunum.

5. Að sjálfsögðu myndi ég prófa typpið, bæði fróa mér og sofa hjá stelpu.

6. Fara á fillery og kanna hvað þarf mikið magn af áfengi til að vekja árasargenin.

7. Njóta þess að vera ekki á túr... (því að sjálfsögðu veldi ég enmitt þá viku)

8. Ganga um ber að ofan á almannafæri.

9. Pissa alveg fullt standandi og alltaf á svona almenningsklósettum við hliðina á öðrum strákum..... finna samkenndina sko....nú eða bara úti, utan í vegg ;)

10. Barna kærustuna mína. (hún fengi engu að ráða sko... æi... smokkurinn rifnaði, sorry 8) )

Úffff þetta var erfitt.... ég segi nú bara "hvað er svona merkilegt við það að vera karlmaður..." langar það barasta ekki neitt.....

en ég löðrunga Írisi, Ingu og Mumma :)


» 75 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 13:56:15 / sigga

Þumalputtaföndur og jesúsvefsíður

Jæja þá er maður formlega sestur við skriftir. Ritgerð næsta mánuðinn.... hugsanir í kringum önnur verkefni og vinnu verða gerðar óvirkar og upptækar um leið og þær bæla á sér.... :)

Gaf mér nú samt tíma til að föndra nokkrar jólagjafir í gærkvöldi, er stolt að segja frá því að þessi jól fá flestir heimalagaðar jólagjafir...... hver sem útkoman verður þar sem mínir tíu þumalfingur henta ekkert allt of vel í þær fínhreyfingarnar sem þarf í föndrið... 8| og skortur á þolinmæði kemur líka algerlega í veg fyrir að fínhreyfingarnar fái nokkurn sjéns.... úps.... þætti gaman að vita hvað fólk er farið að sjá fyrir sér núna.... hehe

Annars var ég svo óheppin að stilla á Útvarp Sögu á laugardaginn, taldi það nokkuð óhætt þar sem Gústaf er hættur, en það var sko aldeilis ekki, þar á greinilega að halda áfram ofsóknum og fordómafullum fréttaflutningi.

Jón Valur Jensson heitir nýi maðurinn og hann veit sko allt um homma og lesbíur.... og hefur vafalaust alla sína vitneskju af fullkomlega trúverðugum amerískum jesús-vefsíðum. Hann hafði t.d. orð á því að amerískar rannsóknir hefðu sýnt að lesbíur væru sko alls ekki lausar undan áhættunni að fá Eyðni (maðurinn vissi greinilega ekki að orðið "eyðni" er ekki lengur notað í íslensku). Nú ástæðan er sú að lesbíur hafa oftar en ekki kynmök við homma...... hmmm mér þætti gaman að komast yfir þessa rannsókn....

Allavega, greinilega ástæða til að halda áfram að gefa skít í Útvarp Sögu.


» 99 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 10:19:44 / sigga

Kraftaverk!

Í gærkvöldi varð ég þátttakandi í kraftaverki.

Í fyrsta skipti á ævinni tókst mér að vera stödd á tveimur stöðum Í EINU....  í beinni útsendingu í sal hjá Sirrý..... og heima í stofu með kærustunni minni að horfa á Sirrý!!!!

Geri aðrir betur ;)


» 72 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 100854
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti