Leyndarmál daganna

31.05.2006 11:05:36 / sigga

Komin heim

20 leiksýningar á rússnesku á 7 dögum.... púff..... og sumar vægast sagt mjög lélegar.... mikil upplifun get ég sagt ykkur.....

Semsagt komin heim frá mjög ævintýralegu ferðalagi um Rússlandi. Vissuð þið að það eru smokkar á matseðli í veitingarvögnum í rússneskum næturlestum.... nú og svo er sérstakur verðlisti yfir eyðileggingar.... t.d. kostar 300 rúblur að eyðileggja dúkinn eða gardínurnar en eitthvað aðeins ódýrara að brjóta glas.

Nú bíður mín að pakka allri íbúðinni minni og þrífa hana fyrir morgundaginn og flytja úr ómenningunni..... og skrifa 100 umsagnir um nemendur mína fyrir sunnudaginn..... og auðvitað að pakka upp og koma mér fyrir í siðmenningunni :D

Frekari færslur um ævintýri mín í Rússlandi og myndir bíða betri tíma......

Ég get samt sagt að það var afskaplega gott að koma heim og kúka í almennilegt klósett...... :S


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 16:56:06 / sigga

Óvissuferð og tannvandamál...

Ég stend mig engan veginn í blogginu þessa dagana.... allt of mikið að gera.

Undirbúningur fyrir óvissuferð til Rússlands á fullu.... við höfum varla hugmynd um hvað við erum að fara að gera... hvað þá hvert við erum að fara... vitum hvorki hvar, hvenær eða hversu oft við eigum að leika. En það er bara skemmtilegra.... við fljúgum út á þriðjudagsmorguninn og svo kemur þetta bara í ljós. Ég vona bara að ég geti horft á Júróvision :$

Annars lenti ég í smá tannvandræðum um daginn, var handviss um að ég væri komin með tannpínu, kannski ekki skrýtið... hef ekki farið til tannlæknis í 12 ár... (hmmm á maður að segja frá svona trassaskap) allavega ég gerðist hugrökk og pantaði mér tíma hjá tannlækni (er haldin mikilli tannlæknahræðslu 8|) og fór.... tannlæknirinn potaði heil ósköp upp í mig og tók myndir og svona.... og komst semsagt að því að ég var sko ekki með neina tannpínu heldur var ég bara búin að tannbursta allt of mikið.... ég verð að segja að þetta hafði ég aldrei heyrt áður... að það væri hreinlega hægt að tannbursta tannholdið í burtu..... veit hins vegar núna að þetta kemur fyrir marga.... hvers vegna er manni ekki sagt frá svona hlutum... ég hef alla tíð staðið í þeirri meiningu að mikil og góð burstun væri af hinu góða... en hvað veit maður....

semsagt er búin að kaupa mér afskaplega mjúkan tannbursta og vanda mig mjög við burstun.....

Ég hef ákveðið að taka tölvuna með mér til Rússlands (jamm búin að taka backup af öllu) en hvort ég kemst í internettengingu þarna í óvissunni er hins vegar ekki víst.... ég verð allavega í bandi á flugvöllum......

sjáumst


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 12:13:33 / sigga

Með sól í hjarta

ég er glöð þegar sólin skín.... fór í fyrsta sólbaðið á árinu á sunnudaginn ;)

Annars fór ég í tvö leikhús um helgina og varð sko ekki fyrir vonbrigðum. Fyrst sá ég Pétur Gaut í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Frábær vinna í alla staði, öll umgjörðin á sýningunni var mjög flott, og skemmtileg nýting á sviðinu, útihurðinni sérstaklega. Það er líka alltaf gaman að láta koma sér á óvart, en hann Björn Hlynur kom mér sko verulega á óvart með frábærum leik í hlutverki Péturs. Hann Karl Ágúst Úlfsson fær líka fimm stjörnur fyrir þýðinguna á verkinu, maðurinn er snillingur.

Á sunnudagskvöldið fór ég á lokasýningu á Systrum hjá Hugleik og þar var sko alls ekki síðra verk á ferðinni og hvað þá síðri leikkonur...... ALVEG FRÁBÆR SÝNING!!!

Á laugardagskvöldið var mér svo boðið á Manschester tónleikana í Höllinni, það var skrýtin samkoma sem bar þess skemmtilega  merki að meirhluti áhorfenda væru boðsgestir. Greinilegt að allir þjónustufulltrúar hjá Flugleiðum fengu boðsmiða hehe...... Trabant var æði, skrýtið hvernig einn maður getur verið svona óhuggulegur og sexý um leið..... svo var Bergmálið og kanínukarlarnir líka alveg ferlega skemmtilegir.... en svo bara nenntum við ekki meir og fórum heim að spila Catan kl. 22.30..... úps...hvað þýðir það.... ætli ég sé orðin Nörd?

Vika í Rússlandsferð.

Sjáumst 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 16:04:52 / sigga

Pleisteisjonheimar.....

Vá ég er tólfþúsundasti gesturinn á minni eigin síðu.... ætli ég fái eitthvað í verðlaun :)........ ef einhver hefði sagt mér það einhverntíman að mér ætti eftir að finnast gaman að spila pleisteisjonleiki hefði ég hlegið mikið..... en það ótrúlegasta gerðist.... fyrst sko horfði ég bara á Írisi spila og lifði mig mikið inn í það sem hún var að gera.... það tímabil entist í nokkra daga... nú svo varð ég að prófa aðeins takkana.. þar til það var varla hægt að ná mér af þeim....og núna á ég minn fyrsta leik og minn eigin stýripinna :) og ég er búin að uppgötva alveg nýja heima í sjónvarpinu mínu þar sem álfar, draugar, tröll og fólk með yfirnáttúrlega hæfileika býr.. semsagt alveg forfallin...... hver hefði trúað þessu...... hmmm

» 2 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  26  Alls: 100739
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti