Leyndarmál daganna

28.04.2007 19:31:10 / sigga

Grískar eyjar og blautir símar....

Þá er það ákveðið og bókað.... 4 vikur á grísku eyjunum í sumar 8)

Í dag gekk ég í kringum tjörnina ásamt nokkur hundruð öðrum.... en ég var örugglega sú eina sem kastaði símanum sínum í tjörnina... (óvart :S) Semsagt á innan við ári hefur mér tekist að láta stela af mér síma, sturtað öðrum í klósettið og misst þann þriðja í tjörnina.... hvað er eiginlega málið með mig og síma....

 Annars er mér mjög ofarlega í huga þetta mál með ríkisborgararéttinn... mikið heldur frú Jónína að íslendingar séu heimskir þegar hún heldur því óspart fram í fjölmiðlum að allsherjarnefnd hafi ekki haft hugmynd um tengsl hennar við stúlkuna sem á lögheimili heima hjá henni.... yeh right....

En það er þó allavega eitt gott við þetta mál.... nú hlýtur að verða mun auðveldara að fyrir aðra að fá ríkisborgararétt... eða maður gæti allavega haldið það... hmmmm


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 10:28:03 / sigga

Skór í glugga....

Í töluverðan tíma er ég búin að ganga fram hjá glugga í miðbænum og dást að skóm í glugganum..... mig bráðvantar skó og þessir voru eitthvað svo "alveg ég".... en allavega ég lét verða af því að fara í búðina um helgina og athuga með skóna.... mér hinsvegar dauðbrá þegar ég spurði um verðið.... þeir kostuðu semsagt 36.000 kr. og aðrir sem mig langaði í kostuðu 26.000 kr. Það var ekki laust við að afgreiðslustúlkan mældi mig út með augunum og biði eftir því að yfirgæfi búðina.... henni hefur ekki þótt ég líklegur kaupandi 8|

Er ekki allt í lagi.... hver kaupir sér skó fyrir þennan pening.... afgreiðslustúlkan hafði rétt fyrir sér... EKKI ÉG..... kannski ekki skrýtið að skórnir séu búnir að vera lengi í glugganum......


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 13:53:08 / sigga

sumar sklumar....

Mér leiðist....´

mér er kalt....

Í leiðindum mínum er ég að skipuleggja sumarfríið... langar að fara til Grikklands... er samt eitthvað að efast.... er oft næstum búin að bóka flugið.... skynsemi mín háir harða baráttu.... en það væri samt skynsamlegt að fara.... Ísland er að éta mig að innan... mig vantar hita, sköpunarkraft og afslöppun....

Ef ég fer ekki þá vantar mig eitthvað mjög skemmtilegt, gefandi og nærandi verkefni í sumar - dettur ykkur eitthvað í hug?

....á ég ekki bara að ýta takkann og bóka flugið....

Hey svo vantar mig líka íbúð á leigu frá sumrinu, 1.júlí eða 1.ágúst? Helst eitthvað ódýrt og pínulítið.... er alveg til í að búa í bílskúr... en ekki allt of langt frá miðbænum....

Plís ef þið vitið um einhvern stað látið mig vita.... plíííís.... þetta er neyðarkall.... 8| 

en allavega GLEÐILEGT SUMAR....


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 19:48:11 / sigga

það sem á daga mína hefur drifið...

Neibb, ekki hætt að blogga ;) var bara haldin smá bloggfælni í nokkra daga.... :S

Á meðan hefur ýmislegt á daga mína drifið....

- Skrapp til Eyju og Baldurs á Bæ á Selströnd og var hjá þeim í nokkra daga. Þetta var mín fyrsta ferð á vestfirði og ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Þar sem Bær stendur 3 km fyrir utan Drangsnes skruppum við að sjálfsögðu í heitu pottana í fjörunni og þar var yndislegt að sitja undir stjörnubjörtum himni og norðurljósum og hlusta á fuglana og öldurnar í fjörunni.

- Fór með heimilisfólkinu á Bæ í dagsferð í Norðurfjörð með viðkomu í Djúpuvík, Trékyllisvík, á Gjögri og á Munaðarnesi. Ég varð fyrir óútskýranlegum hughrifum í þessari ferð, upplifði nýja hlið á landinu, gífurlega einmana og yfirgefna....  hughrifin voru mest í Djúpuvík, þangað ætla ég aftur!

- Nú svo urðu bæði ég og kötturinn lasinn... jamm kötturinn minn fékk flensu, fékk sprautur og pillur og var ótrúlega aumur í 2 daga.... lá bara og slefaði.... (kötturinn sko, ekki ég 8|)

- Nú svo lenti ég í afskaplega pínlegu atviki fyrir nokkrum dögum þegar ég skrapp út á stétt að sækja köttinn og útihurðin skelltist í lás á eftir mér.... ég var semsagt lyklalaus á náttfötunum og berfætt úti á götu, veik og símalaus....  og inni var hrísgrjónagrautur á eldavélinni alveg að fara að sjóða.... mér tókst að finna stúlkur sem lánuðu mér síma og faðir minn bjargaði mér úr vandræðunum frekar fljótlega.... en ekki nógu fljótt til þess að bjarga grautnum, nú eða pottinum.... ég held að brunalyktin sé enn í íbúðinni... :(

- núna var ég að koma af frumsýningu á nýrri heimildamynd sem heitir Tímamót. Frábær mynd sem kom skemmtilega á óvart!   Hér er hægt að kynna sér myndina:

http://www.youtube.com/watch?v=0LqBQXwvhYI

og hér er hægt að sjá stutt atriði úr henni hér:

http://www.youtube.com/watch?v=l7POY-vTw8o

Ég hvet ykkur til að sjá þessa einlægu og fallegu mynd :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.04.2007 12:32:44 / sigga

Húrra fyrir Hafnarfirði!

Jæja enn ein vinnutörnin á enda.... tómleikatilfinningin hellist yfir mann.... ekki laust við að maður viti ekkert hvernig maður eigi að haga sér... kann varla að eiga samskipti við fólk eldra en 16 ára...

Hef haft tíma til að lesa bækur og slaka á í nokkra daga - sérstök tilfinning :)

Annars vil ég taka ofan fyrir Hafnfirðingum frábært hjá þeim að hafna álversstækkun, reyndar efast maður svo um "lýðræðið" að maður getur ekki annað en leitt hugann að því hvenær ríkisstjórnin grípi inn í og úrskurði kosningarnar ógildar.... nú eða hreinlega breyti bæjarmörkum Hafnarfjarðar þannig að Kópavogur, nú eða Garðabær eignist álverslóðina...


» 4 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 100861
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti