Leyndarmál daganna

29.05.2007 09:07:32 / sigga

skriffæraflóð....

Er á fullu að pakka niður íbúðinni.... það leiðinlegasta sem ég geri.... sit helminginn af tímanum og glápi á draslið og furða mig á því hvar ég náði mér í svona mikið af tilgangslausu dóti.... mest furða ég mig þó á því hversu mikið af pennum og blýöntum geta leynst í einni íbúð... 8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 22:38:37 / sigga

Það var vorkvöld í Moskvu þá...

Allt í einu langaði mig rosalega mikið að vera í Rússlandi.... Í maí í fyrra var ég í Rússlandi... ég var að hugsa um það núna.... ég fékk óútskýranlega löngun til þess að ganga yfir Rauðatorg Moskvuborgar....  kannski rauðu genin í mér séu að segja til sín nú þegar nýbúið er að mynda ríkisstjórn...8|

Ég fór fyrst til Rússlands þegar ég var 17 ára, þá var ég búin að hlusta oft á ónefnda karlmenn heima í Neskaupstað tala um Sovétríkin með blik í augum og ástríðu í röddinni.... þessir sömu menn styðja nú trúlega hægrisinnaða ríkisstjórn og stóryðju af sama eldmóði...

Það er eiginlega skammarlegt hvað ég fylgist lítið með pólítík í dag... ég var mun öruggari í skoðunum mínum þegar ég var barn og unglingur... Tók m.a. þátt í að móta stefnu Alþýðubarnalagsins þegar ég var 10 ára.... við höfðum aðstöðu í herbergi á kosningarskrifstofu Alþýðubandalagsins og það lá beinast við að feta í fótspor foreldrana... enda var afi alltaf með það á hreinu að ég endaði á þingi.... en það var nú aldeilis ekki.... pólitískur áhugi minn fór hratt dvínandi eftir að við fluttum frá Neskaupstað... enda engir kennarar til þess að halda manni við efnið...

Já maður hugsar með söknuði til kosninga í þá daga.... það var sko rosalega gaman að vera barn í Neskaupstað í kosningabaráttunni.... og svo var hrikalega gaman að fylgjast með foreldrunum á kosninganóttinni.... maður vissi alltaf að staðan var góð þegar "Maíkvöld í Moskvuborg" var farið að hljóma í stofunni...

Nú svo er örugglega betra veður í Moskvu núna.... hvað á það að þýða að bjóða manni upp á haglél í lok maí... börnin í Hagaskóla skemmtu sér vel á leikjadegi og vorhátíð í snjóstorminum í gær...


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 20:33:45 / sigga

Vorverk og listahátíð...

Júróvisjón og kosningar old news.... "trukkalessa" vann júróvisjón og stjórnin fallin... ekkert slæmt við það... gífurleg hægristjórn í uppsiglingu.... veit ekki alveg  hvað mér finnst um það...

 Annars lítið að frétta, vorverkin í skólanum eiga hug minn allan þessa dagana, nú svo auðvitað flutningar um mánaðarmótin, hef ekkert sérstaklega gaman af því að pakka... finnst ég nýbúin að taka upp úr kössum :$

Listahátíð fór ekki alveg framhjá mér.... Risessan heillaði mig uppúr skónum og Gyðjan í vélinni sömuleiðis, frábær gjörningur hjá Vatnadansmeyjafélaginu Hrafnhildi... mig langaði helst ekki að yfirgefa skipið, ég vona að þær sýni eitthvað áfram og þá hvet ykkur til að fara og heimsækja gyðjurnar í Óðni. Nú svo fór ég að sjá Cymbeline í gærkvöldi og var mjög ánægð. Mér fannst frábært hvernig þau notuðu sviðið og leikararnir voru yfirleitt mjög góðir.

Hr. Níels bara blómstrar, við vorum í myndatöku um daginn, ég og hann, voða sæt saman.... listakona í götunni er að safna myndum af nágrönnunum og hefur myndað alla í götunni í mörg ár, skemmtilegt.

Get ekki beðið eftir að komast á Grísku eyjarnar í afslöppun....


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 20:14:52 / sigga

Truflandi víbradorar...

Heyrði í útvarpinu í dag að það væri búið að banna fjarstýrða víbradora á Kýpur... þeir eru hræddir um að þeir trufli fjarskiptatæki hersins..... Já maður spyr sig....


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 19:53:48 / sigga

Stöðumælavörður á villigötum....?

Í dag horfði ég á stöðumælavörð setja sektarmiða í glugga á bíl merktum fötluðum bílstjóra. Bílnum var lagt upp á gangstétt við hliðina á stæði merktu fötluðum þar sem "ófötluðum" bíl var lagt..... það er eitthvað rangt við þetta....

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 01:30:18 / sigga

Götumenning í Reykjavík

Þegar ég labbaði í gegnum miðbæ Reykjavíkur í laugardagsnóttinni leið mér næstum eins og í útlendri stórborg..... Það voru skemmtikraftar á hverju horni, trúbadorar, harmónikkuleikarar og bongotrommuleikarar.... að sjálfsögðu allt útlendingar (nema frábæri trúbadorinn fyrir utan Eymundsson) ... íslendingar kunna bara ekki svona götumenningu... þessvegna er svo gott að fá útlendinga. Við gætum loksins lært að verða stórborg.... (já eða þannig...)

 Mér finnst að útlendir götulistamenn eigi að fá ríkisborgararétt á sömu forsendum og afreksmenn í íþróttum.... það er bara verst að þeir taka ekki kort.... :S

 


» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  26  Alls: 100739
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti