Leyndarmál daganna

18.09.2007 18:22:46 / sigga

Pirringur...

Það er ýmislegt sem pirrar mig þessa dagana.... ég geri mér fulla grein fyrir því að ég á ekki að láta hluti fara í taugarnar á mér en suma daga þá bara gera þeir það... suma daga tekst mér að halda þessu í skefjum en ekki í dag.... :evil:

Í dag fer eftirfarandi í taugarnar á mér...

- Að það hafi kostað yfir 5000 kr. að senda smá pakka til Völu systur í Bandaríkjunum

- Að ég skuli láta neikvæðni annarra ná tökum á mér (í dag :S)

- Hversu djö.... lág kennaralaunin eru...

- Að allir íslenskir skemmtiþættir þurfi að vera eins... það væri alveg eins hægt að sameina stelpurnar og Spaugstofuna úr þessu.... ég meina hvað verður um Boga og Örvar...8|

- Hversu erfitt er að fá starfsfólk í grunnskóla

- Að það skuli bitna á okkur kennurunum hversu erfitt er að fá starfsfólk í grunnskóla

- Kröfurnar sem sumir foreldrar gera á kennara

- Að sumir foreldrar geti ekki sinnt uppeldinu á börnunum sínum

- Úrræðaleysi þjóðfélagsins

- Að það megi ekki eyða krónu í að hjálpa börnum og unglingum.... (hérmeð auglýst eftir sjálfboðaliðum með sérmenntun í uppeldis og meðferðarvinnu... ARRRGGH...)

- skilningsleysi almennings

- Asnalegar áherslur stjórnvalda

- Að vera ekki metin að verðleikum

- Að ég skuli ekki vera stödd annars staðar en á Íslandi....

og hana nú....

hérmeð óska ég eftir að þið sem þetta lesið kommentið og segi frá einhverju sem fer í taugarnar á ykkur, það er svo agalega gott að fá útrás... ;)

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 19:13:53 / sigga

Smalamennska með meiru....

Það er langt á milli heimsókna í bloggheima þessa daganna... mikið að gera og frítíminn sem fer í netið hefur verið helgaður andlitsbókinni síðustu daga... frekar hættulegur heimur þessi andlitsbók... maður dettur algerlega í þetta.... en samt gaman að finna gamla vini um allan heim :)

 Nú annars er það að frétta að síðustu helgi fór ég í sveitarferð að heimsækja frændfólk mitt í Suðursveitinni, það vildi svo til að um helgina voru göngur og ég auðvitað skellti mér með... reyndar gekk ég ekki mikið, ég og 7 ára frændi minn smöluðum 5 kindum alein úr fjallinu fyrir ofan bæinn :) nú og svo biðum við eftir kindum í marga klukkutíma, áttum að standa fyrir og hjálpa til að reka í rétt... er kindurnar loksins birtust vorum við orðin vel berjablá en þetta var allt í fína lagi þar sem veðrið var alveg yndislegt, sól og hiti.

Sunnudagurinn var minni í smöluninni, þá ætluðum við frændi minn að dóla okkur inn í fjalli í berjamó þar til kæmi að því að standa fyrir, við fórum á jeppanum hans inn í fjall og týndum nokkur ber, en þá var hann skyndilega kallaður út úr jeppanum til að elta kind sem nálgaðist okkur á miklum hraða... Það kom í ljós að kindin var snarbrjáluð og eltingarleikurinn tók yfir 2 tíma, kindinn vann að lokum... og hvarf... en það sem verra var að hann hljóp út úr jeppanum og skildi mig eftir og sagði mér að keyra.... þarna var ég stödd utan vegar á miklu grjóti og umkringd rennandi vatni.... og ég sem hef ekkert keyrt stærra en skódana hennar mömmu.... það var bara að duga eða drepast.... og nú hef ég semsagt afrekað það að keyra yfir á!!!

 Og á leiðinni í sveitina keyrði ég yfir Fýlsunga :cry: hræðileg lífsreynsla, beint undir dekkið.... blóð út um allt... en það var ég eða hann....  mér til málsbóta get ég sagt að ég bjargaði nokkrum öðrum frá sömu örlögum með snöggum viðbrögðum.... alveg ótrúlegt hvað þeir eru rólegir á götunni....

Vala systir er núna búin að vera í mánuð í Fresno, California, þar sem hún er skiptinemi. Hún bloggar á blog.central.is/valav og hefur frá mörgu skemmtilegu að segja...

 


» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 100854
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti